Flottur vinnudagur á Dalvíkurvelli

Í gærkvöldi var vinnudagur á Dalvíkurvelli þar sem svæðið okkar á Dalvíkurvelli var græjað fyrir fyrsta leik sumarsins. Leikmenn liðsins ásamt stjórnar- og stuðningsmönnum liðsins mættu á svæðið og hendur standa fram úr ermum.
Eftir herlegheitin tók svo létt strandblak á nýjum og glæsilegum strandblaksvelli á Dalvík.

Fyrsti leikur sumarsins á Dalvíkurvelli verður á laugardaginn kemur, klukkan 14:00, en þá koma KFG úr Garðabæ í heimsókn.
Dalvíkurvöllur hefur tekið miklum framförum undanfarnar vikur en ljóst er að völlurinn verður erfiður viðureignar í þessum leik.

Hér fyrir neðan eru nokkrar myndir frá vinnudeginum en við þökkum þeim stuðningsmönnum sem mættu og lögðu hönd á plóg. Þið eruð snillingar.

Aðrar fréttir