Samningur framlengdur við Landsbankann

Á dögunum var undirritaður nýr samstarfs samningur milli Landsbankans og Knattspyrnudeildar Dalvíkur. Landsbankinn mun því áfram vera aðal styrktaraðili Knattspyrnudeildar Dalvíkur.

Slíkir styrktarsamningar eru starfi knattspyrnunnar í Dalvíkurbyggð gríðarlega mikilvægir, sérstaklega á tímum sem þessum.
Fyrirtæki sýna af sér mikla samfélagslega ábyrgð með styrktarsamningum sem þessum og standa þannig þétt við bakið á íþróttafélögum í landinu. Mikil ánægja ríkir með samstarfið við Landsbankann en samningurinn gildir út tímabilið 2023.

Þeir Jónas M. Pétursson, útibússtjóri Landsbankans á Dalvík, og Stefán Garðar Níelsson, formaður Knattspyrnudeildar, undirrituðu samninginn á dögunum.

Aðrar fréttir