Aron Máni og Bjarmi semja við D/R

Leikmennirnir Aron Máni Sverrisson og Bjarmi Fannar Óskarsson hafa gert tveggja ára samning við Knattspyrnudeild D/R.
Þeir ganga til liðs við frá Þór Akureyri.

Þeir félagar voru báðir á láni með D/R síðasta sumar og smell pössuðu inn í hópinn.
Þeir eru báðir tvítugir að aldri.

Aron Máni er vinstrifótar varnarmaður og lék hann 20 leiki í 3.deildinni síðasta sumar fyrir D/R.
Bjarmi Fannar er hávaxinn varnmarmaður en hann lék 19 leiki fyrir liðið í 3.deildinni.

Við bjóðum þessa snillinga velkomna í D/R!

Aðrar fréttir