Barna- og unglingaráð auglýsir eftir þjálfurum

Stjórn Barna- og unglingaráðs UMFS Dalvíkur auglýsir eftir þjálfurum fyrir yngriflokka félagsins.

Félagið leitar eftir metnaðarfullum einstakling sem er tilbúinn að koma inn og taka þátt í uppbyggingu félagsins.
Nokkrir flokkar eru í boði og mismunandi möguleikar, allt eftir samkomulagi.

Erna Þórey Björnsdóttir, formaður Barna- og unglingráðs, gefur frekari upplýsingar um starfið og tekur á móti umsóknum á netfanginu [email protected]

Aðrar fréttir