Brúinn aflahæstir!
Í gærkvöldi fóru leikmenn ásamt stjórnar- og stuðningsmönnum liðsins í hina árlegu sjóstöng. Farið var í blíðskapa veðri með Níelsi Jónssyni frá Hauganesi.
8 lið voru skráð til leiks að þessu sinni og keppnin tekin alvarlega eins og vera ber. Liðin mættu að sjálfsögðu í búningum en misjafnt var hversu mikil vinna var lögð í búningakeppnina í ár.
Að veiðinni lokið var bátnum komið eins nálægt Sandvíkurfjöru og möguleiki var og menn syntu þaðan í land.
- Aflahæsta liðið að þessu sinni voru Brúinn Stuðningsmenn!
- Búningaverðlaunin: Elvar Óli, Haukur Snorra, Gaz og Angantýr!
- Stærsti fiskurinn: Þröstur Þrjúsúsund!
- Aflahæstur: Svenni þjálfari!
- Hetja hafsins: Birkir Elí Stefánsson (fyrir að bjarga leikmanni D/R frá drukknun)