Brúinn aflahæstir!

Í gærkvöldi fóru leikmenn ásamt stjórnar- og stuðningsmönnum liðsins í hina árlegu sjóstöng. Farið var í blíðskapa veðri með Níelsi Jónssyni frá Hauganesi.

8 lið voru skráð til leiks að þessu sinni og keppnin tekin alvarlega eins og vera ber. Liðin mættu að sjálfsögðu í búningum en misjafnt var hversu mikil vinna var lögð í búningakeppnina í ár.

Að veiðinni lokið var bátnum komið eins nálægt Sandvíkurfjöru og möguleiki var og menn  syntu þaðan í land.

  • Aflahæsta liðið að þessu sinni voru Brúinn Stuðningsmenn!
  • Búningaverðlaunin: Elvar Óli, Haukur Snorra, Gaz og Angantýr!
  • Stærsti fiskurinn: Þröstur Þrjúsúsund!
  • Aflahæstur: Svenni þjálfari!
  • Hetja hafsins: Birkir Elí Stefánsson (fyrir að bjarga leikmanni D/R frá drukknun)

 

Aðrar fréttir