Fannar Daði og Steinar Logi framlengja

Á dögunum skrifuðu þeir Fannar Daði Malmquist Gislason og Steinar Logi Þórðarson undir nýja samninga við D/R og leika því með liðinu næsta sumar.

Fannar ætti að vera fólki kunnugur en þessi hárprúði drengur var valinn besti leikmaður D/R á síðasta tímabili. Hann skoraði 6 mörk síðasta sumar og átti fjöldann allan af stoðsendingum. Fannar, sem er fæddur árið 1996, getur leyst flest allar sóknarstöður á vellinum. Slaki.

Steinar Logi er Dalvíkingum vel kunnugur enda búinn að vera dyggur þjónn liðsins frá árinu 2013 og spilað 92 leiki fyrir D/R. Steinar er mikill félagsmaður, talinn sem Dalvíkingur í húð og hár, kraftmikill og drengur góður. Steinar getur leyst flest allar varnarstöður á vellinum. Daufi.

Áfram D/R
Hugrekki – Samheldni – Vinnusemi – Virðing

Aðrar fréttir