Flugeldasalan 2019 – opnunartímar

Líkt og undanfarin ár stendur Björgunarsveitin á Dalvík fyrir veglegri flugeldasölu í samvinnu við Knattspyrnudeild Dalvíkur.
Flugeldasalan fer fram í húsnæði Björgunarsveitarinnar að Gunnarsbraut 4 á Dalvík.

Opnunartímar Flugeldasölunnar eru sem hér segir:

28.des 16:00 – 22:00
29.des 12:00 – 22:00
30.des 12:00 – 22:00
31.des 10:00 – 16:00
3.jan 14:00 – 18:00
4.jan 14:00 – 18:00

Björgunarsveitir eru samansettar af sjálfboðaliðum sem eru tilbúnir hvenær sem er sólarhringsins að leggja lið og aðstoða samborgara sína. Björgunarsveitin Dalvík hefur að geyma góðan hóp sjálfboðaliða, en til viðbótar er hún rík af góðum bakhjörlum sem standa þétt við bak sveitarinnar. Stuðningurinn sem sveitin hefur í sveitarfélaginu er ómetanlegur og eiga bakhjarlar stóran þátt í velgengni hennar undanfarinna ára.

Við hvetjum fólk til að kaupa flugelda hjá Björgunarsveitinni og styðja við bakið á þeirra ómetanlega starfi.

Aðrar fréttir