Íslandsmótið að hefjast
Um helgina byrjar boltinn að rúlla í Íslandsmóti 3.deildar karla. Okkar menn í Dalvík/Reyni taka þá á móti Víði frá Garði.
Leikið verður á Dalvíkurvelli klukkan 13:00, laugardaginn 8. maí.
Takmarkaður miðafjöldi verður í sölu, en hér fyrir neðan má sjá mikilvægar upplýsingar fyrir áhorfendur leiksins.
Ársmiðasala er í fullum gangi. Hægt verður að kaupa ársmiða í sjoppunni á leikdegi.
Upplýsingar til áhorfenda:
- Tvö hólf verða á vellinum. Hólf A er stúkan.
Hólf B er grasbakki sunnan við stúkuna.
200 miðar í boði. - Sér inngangur verður fyrir bæði hólf og númeruð sæti.
- Miðaverð: 1000 kr.
(Börn fædd 2015 og síðar telja ekki með í fjöldatölu). - Verið er að vinna í því að koma miðasölu upp í Stubb-appinu.
Með miðakaupum á Stubb fer fram rafræn skráning á leikinn. Fólk þarf svo að gefa upp í hvaða sætum þau sitja og starfsmenn vallarins skrá þær upplýsingar niður. - Hvetjum fólk til þess að mæta tímanlega.
Hvetjum þá sem ætla að kaupa miða á vellinum að mæta með forskráðar upplýsingar á blaði með nafni, kennitölu og gsm númeri og afhenda starfsfólki miðasölunnar. Það flýtir fyrir afgreiðslu. - Grímuskylda er á vellinum – minnum fólk á að halda fjarlægð, varast hópamyndanir og persónubundnar sóttvarnir.
Áfram Dalvík/Reynir!