Jafntefli í Fiskidagsleiknum – Myndir

Á fimmtudaginn síðastliðinn tók D/R á móti KV í Fiskidagsleiknum 2018. Leikið var við frábærar aðstæður á Dalvíkurvelli og var töluverður fólksfjöldi á leiknum.

Dalvík/Reynir voru töluvert sterkari aðilinn í leiknum og áttu nokkur frábær færi í fyrrihálfleiknum.
Í síðari hálfleiknum var sagan svipuð þrátt fyrir að KV hafi ógnað marki heimamanna meira en í þeim fyrri. Alls áttu heimamenn í D/R 18 skot á markið en inn vildi boltinn ekki og lokastaða því 0-0.

Fyrir leik var upphitun stuðningsmanna þar sem stjörnuprýtt teymi var á grillinu. Við þökkum kærlega fyrir aðstoðina.

Hér fyrir neðan má sjá myndaveislu frá Sævari Geir Sigurjónssyni og sendum við honum bestu þakkir fyrir myndirnar.

Aðrar fréttir