Jói og Peddi stýra D/R saman

Stjórn Knattspyrnudeildar Dalvíkur hefur gengið frá samningum við tvo aðalþjálfara sem stýra munu liðinu saman næsta sumar. Þetta eru þeir Pétur Heiðar Kristjánsson og Jóhann Hreiðarsson. Samningurinn er til eins árs.

Peddi var aðalþjálfari liðsins á síðasta tímabili og Jói honum til aðstoðar, en með ákveðnum áherslubreytingum munu þeir félagar halda samstarfinu áfram.

Við teljum það jákvætt að hafa tvo öfluga einstaklinga í starfi aðalþjáflara fyrir félag sem okkar. Við sjáum ákveðin tækifæri í þannig fyrirkomulagi og teljum okkur vera sníða stakk eftir vexti. Þó liðið hafi ekki náð markmiðum sínum á síðasa tímabili þá teljum við að þetta teymi sé á réttri vegferð með starfið í heild og spennandi hlutir séu í farvatninu” segir Stefán Garðar formaður félagsins.

Áætla má að liðið hefji æfingar fljótlega í nóvember og liðið mun svo taka þátt í Kjarnafæðismótinu sem hefst í lok árs.

Aðrar fréttir