KSÍ III þjálfaranámskeið á Akureyri

Knattspyrnusamband Íslands mun halda KSÍ III þjálfaranámskeið á Akureyri helgina 11.-13. janúar 2019.
Við hvetjum fólk til að kynna sér málið.

Dagskrá námskeiðsins er í vinnslu og verður auglýst á næstu dögum.

Þátttökurétt hafa allir sem klárað hafa KSÍ I og KSÍ II þjálfaranámskeið. Til að klára KSÍ III námskeiðið þarf að vinna verkefni sem lýsir sér í 20 klst. þjálfun hjá félagi og skýrslugerð. Verkefnalýsing er í viðhengi ásamt tímaseðli sem þátttakendur geta notað.

Námskeiðsgjaldið er 25.500 kr.

Hægt er að skrá sig með því að fara inn á þessa slóð: https://goo.gl/forms/fjT8FbcMehIGqxc93

Aðrar fréttir