Magnaður ferill Atla Viðars á enda

Dalvíkingur Atli Viðar Björnsson gaf út í morgun að ferill hans væri á enda og kominn tími til að hefja nýjan kafla. Atli Viðar er margfaldur Íslands- og bikarmeistari með FH ásamt því að vera þriðji markahæsti leikmaður efstu deildar Íslandsmóts karla frá upphafi með 113 mörk.

“Rúmum 32 árum eftir fyrsta fótboltamótið, 22 árum eftir fyrsta meistaraflokksleikinn með Dalvík og eftir 18 ár hjá FH er skrýtið að vera allt í einu orðinn “fyrrverandi” fótboltamaður.
Tel samt að nú sé ágætt að setja punkt og hefja nýjan kafla.
Ég hef verið ótrúlega lánsamur að fá að taka þátt í allri velgengninni með FH undanfarin ár og geng þakklátur af velli.
Fótboltinn hefur verið stór hluti af lífi mínu alla mína tíð og verður það áfram, bara með allt öðrum hætti. 
Takk fyrir mig.
Luv!”

Atli Viðar hef­ur á árum sín­um með FH unnið til fjölda titla og skorað 113 mörk í efstu deild fyr­ir fé­lagið. Þessi 38 ára gamli fram­herji varð Íslands­meist­ari með FH árin 2004, 2005, 2006, 2008, 2009, 2012, 2015 og 2016. Þá varð hann bikar­meist­ari með liðinu árin 2007 og 2010.
Atli Viðar hóf fer­il sinn hjá Dal­vík áður en hann flutti sig í Hafn­ar­fjörðinn fyr­ir 18 árum, en síðan þá hef­ur hann leikið með FH utan eins tíma­bils með Fjölni sem lánsmaður árið 2007.

Atli á að baki fjóra A-landsliðsleiki á ferli sínum, hann hefur fengið Gull, Silfur og Bronsskó efstudeildar karla ásamt því að skora mörg fræg og eftirminnanleg mörk fyrir félag sitt.
Á ferli sínum hefur Atli Viðar m.a. tvívegis gengið í gegnum erfið krossbandaslit á hnéi og verið frá í langan tíma en alltaf komið tvíefldur til baka.

Atli Viðar – Til hamingju með frábæran feril, fyrirmynd ungra Dalvíkinga.

Aðrar fréttir