Markalaust jafntefli við Fjarðabyggð

Í kvöld lék Dalvík/Reynir á móti Fjarðabyggð í 9.umferð 2.deildar karla.
Leikið var í Boganum á Akureyi.

Leikurinn var nokkuð fjörugur en heilt yfir voru heimamenn í Dalvík/Reyni öflugari aðilinn. Ljóst var að gestirnir frá Fjarðabyggð ætluðu að verja stigið með kjafti og klóm.

Til að gera langa sögu stutta þá endaði leikurinn með markalaustu jafntefli.

Eftir þetta eru liðsmenn D/R með 11 stig í 7. sæti deildarinnar.

Hér má sjá leikskýrlu úr leiknum

Næsti leikur liðsins er útileikur gegn ÍR en sá leikur fer fram fimmtudaginn 4. júlí.

Aðrar fréttir