Miðasala á bikarleikinn gegn KF – Upplýsingar
Laugardaginn 1. maí fer fram leikur Dalvíkur/Reynis og KF í 2. umferð Mjólkurbikarsins.
Leikurinn byrjar klukkan 14:00 á Dalvíkurvelli.
Vegna sóttvarnarlaga eru aðeins 200 miðar í sölu á völlinn og forsala miða er hafin á Stubb-appinu.
Við hvetjum fólk til að kynna sér það og kaupa miða þar í gegn.
Upplýsingar til áhorfenda:
- Tvö hólf verða á vellinum. Hólf A (fyrir heimalið) er stúkan.
Hólf B (gestalið) er grasbakki sunnan við stúkuna. - Sér inngangur verður fyrir bæði hólf og númeruð sæti.
- Um 150 miðar verða í forsölu til að byrja með. Einhverjir miðar verða svo til sölu í sjoppu á leikdegi.
- Börn 6-16 ára þurfa greiða 1000 kr. inn á völlinn
Fullorðnir greiða 1500 kr.
(Börn fædd 2015 og síðar telja ekki með í fjöldatölu). - Engar snyrtingar verða við völlinn fyrir áhorfendur.
- Með miðakaupum á Stubb fer fram rafræn skráning á leikinn. Fólk þarf svo að gefa upp í hvaða sætum þau sitja og starfsmenn vallarins skrá þær upplýsingar niður.
- Hvetjum fólk til þess að mæta tímanlega.
Hvetjum þá sem ætla að kaupa miða á vellinum að mæta með forskráðar upplýsingar á blaði með nafni, kennitölu og gsm númeri og afhenda starfsfólki miðasölunnar. Það flýtir fyrir afgreiðslu. - Grímuskylda er á vellinum – minnum fólk á að halda fjarlægð, varast hópamyndanir og persónubundnar sóttvarnir.
Leikurinn verður ekki sýndur á netinu.