Síðasti heimaleikurinn – frítt á völlinn

Á laugardaginn n.k. fer fram síðasti heimaleikur Dalvíkur/Reynis þetta sumarið og er sá leikur vægast sagt mikilvægur. Með sigri getur D/R tryggt sæti sitt í 2. deild að ári.

Dalvík/Reynir – KH
Lau. 8. sept kl. 14:00
Dalvíkurvöllur
Frítt á völlinn fyrir alla sem mæta í bláu!

Liðsmenn KH eru ennþá í bullandi baráttu um að komast upp um deild. Tap þeirra í síðustu umferð gegn nágrönnum okkar í KF gerði verkefni þeirra aðeins erfiðara.
KH menn eru sem stendur í 6. sæti deildarinnar með 24 stig, 4 stigum frá 2. sæti deildarinnar þegar 6 stig eru í pottinum.

Leikmenn D/R koma hungraðir til leiks eftir rúmlega tveggja vikna pásu. Liðið tapaði síðasta leik gegn Vængjum Júpíters og eru menn því staðráðnir í að rétta skútuna við.

Með sigri í þessum leik tryggir D/R sér sæti í 2. deild að ári og er því ljóst að mikið er undir.

Staðan í deildinni

Aðrar fréttir