Síðasti leikur Kjarnafæðismótsins

Á sunnudaginn n.k. mun Dalvík/Reynir leika síðasta leik sinn í Kjarnafæðismótinu þetta árið.
Að þessu sinni verður spilað gegn KA2 og fer leikurinn fram sunnudaginn 2. febrúar klukkan 17:15 í Boganum á Akureyri.

Dalvík/Reynir tapaði 4-0 gegn KA-mönnum í síðustu umferð, hér má sjá leikskýrslu úr þeim leik.

Okkar menn er sem stendur með 8 stig eftir 5 leiki.
KA2 eru með 3 stig eftir 4 leiki.

Hér má sjá stöðuna í A-deild Kjarnafæðimótsins.

Við hvetjum fólk til þess að mæta í Bogann á sunnudaginn!

Aðrar fréttir