Sigurvegarar í Jako-leiknum!

Fyrir leik Dalvíkur/Reynis og Selfoss var settur af stað Jako-getraunaleikur á facebooksíðu Dalvíkur/Reynis.
Leikurinn gekk út á að stuðningsmenn áttu að giska á rétt úrslit leiksins og í verðlaun voru tvær nýjar Jako keppnistreyjur Dalvíkur/Reynis.

Vegna tæknilegra örðugleika var ekki hægt að birta sigurvegara leiksins fyrr en nú.

Sigurvegararnir eru þeir Bjarmi Skarphéðinsson og Ingvi Hrafn Ingvason.

Grjótharðir báðir tveir og greinilega spámenn miklir!

Til gamans má geta að nokkrir aðilar spáðu fyrir um rétt úrslit en dregið var um sigurvegara í Jako-leiknum.

Bjarmi Skarphéðinsson á leifurhraða upp hægri vænginn í kempuleik Fiskidagsins 2013.

Ingvi Hrafn Ingvason við undirritun samnings áriðs 2007.

Aðrar fréttir