Sigurvegari Rokk leiksins!
Búið er að draga í Rokk-leiknum okkar á facebook.
Leikurinn snérist um að merkja inn þá aðila sem viðkomandi vildi bjóða með sér á Rokkhátíðina sem fer fram á laugardaginn.
Jónína Guðrún Jónsdóttir var svo heppin að vera dregin út og fær hún 5 frímiða á Rokkhátíðina, 5 drykki á barnum ásamt fráteknu borði fyrir sinn hóp!
Nú þegar eru vel yfir 150 miðar seldir í forsölu og stefnir allt í frábært kvöld. Söngvarar og hljómsveit hafa staðið í ströngu og er lofað mikilli skemmtun.
Ennþá er hægt að tryggja sér miða í forsölu hjá Jóhanni Má rokkstjóra á netfangi [email protected]
Einnig verður hægt að kaupa miða við dyrnar.