Skipulagðar æfingar hefjast aftur 4. maí

Þann 4. maí n.k. má reikna með að skipulagt íþróttastarf hefjist aftur í Dalvíkurbyggð.
Æfingar og keppnir í skipulögðu íþróttastarfi barna og ungmenna (yngri en 16 ára) verða heimilar án áhorfenda eftir 4. maí og eru engar fjöldatakmarkanir settar á iðkendur.
Áfram er þó hvatt til sérstaks hreinlætis og handþvottar.

Fyrir íþróttastarf fullorðina gilda þær takmarkanir að mest verði sjö einstaklingar með þjálfara á útisvæði sem miðast við hálfan fótboltavöll. Keppni í íþróttum fullorðina verður áfram óheimil.

Áfram verða búningsklefar lokaðir og önnur sameiginleg aðstaða lokuð.

Barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar Dalvíkur mun senda frá sér skýrari fyrirmælum til foreldra og forráðamanna á næstu dögum.

Aðrar fréttir