Sterkur sigur á Kára

Á sunnudaginn síðastliðinn héldu okkar menn upp á skipaskaga og léku þar við Káramenn.
Leikið var í Akraneshöllinni.

Leikurinn var hinn fjörugasti og voru alls skoruð fjögur mörk í fyrrihálfleiknum.
Kára-menn komust yfir á 14. mínútu en D/R náði að jafna tveim mínútum síðar en það mark var sjálfsmark Kára manna.
Á 22. mínútu fengu Kára-menn ódýra vítaspyrnu og skoraði Andri Júlíusson úr spyrnunni.
Fyrirliði okkar manna, Snorri Eldjárn Hauksson, jafnaði hinsvegar leikinn aftur á 33. mínútu með stórgóðu marki.
Staðan í hálfleik því 2-2.

Í þeim síðari róaðist leikurinn töluvert. Sigurmark leiksins kom á 53. mínútu en það gerði Númi Kárason eftir glæsilega sókn.
Lokatölur því 2-3 sterkur sigur!

Hér má sjá leikskýrlu leiksins

ÍA-TV, eitt besta vefvarp landsins, sýndi leikinn beint á Youtube rás sinni. Hér er hægt að horfa á leikinn og mörkin

https://www.youtube.com/watch?v=czEVgx69p_g
ÍATV

Aðrar fréttir