Strandarmót JAKO 2021

Hið árlega Strandarmót JAKO verður haldið laugardaginn 17. júlí á Dalvíkurvelli. Mótið er fyrir drengi og stúlkur í 8. og 7. flokki.

Undanfarin ár hefur mótið farið fram á Árskógsvelli en nú hefur verið ákveðið að færa mótið á nýjan gervigrasvöllinn á Dalvík.

Mótsfyrirkomulag verður þannig að 8. flokkur keppni frá klukkan 10:00 – 13:00 og 7. flokkur frá 13:30 – 16:30.
Leikið verður í 5 manna liðum í þremur styrkleikaflokkum.
Áætlað er að hvert lið spili 4-6 leiki, 10 mínútna langa.

Mótsgjald er 3000 kr. á hvert barn.
Félög greiða fyrir alla sína keppendur í einni greiðslu.

Allir þátttakendur fá verðlaunapening, þátttökugjöf, grillaða pylsu, drykk, ís og frítt í sund eftir að keppni lýkur.

Skráning fer fram í gegnum Google forms og stendur til 9. júlí. Hér má finna link á skráninguna

Nánari upplýsingar verða birtar á Facebooksíðu Strandarmótsins og á dalviksport.is

Barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar Dalvíkur
[email protected]

Aðrar fréttir