Styttist í Strandarmótið

Í ár verður haldið uppá 25 ára afmæli Strandarmótsins. Mótið verður leikið sem fyrr á Árskógsvelli og fer það fram helgina 21. – 22. júlí. 

Leikið verður með hefðbundnu sniði, styrkleikaskipt fyrir 6. – 8. flokk, bæði fyrir stelpur og stráka.

Á laugardeginum frá kl. 10:00-13:00 leikur 8.flokkur en 6.flokkur leikur frá 13:00 – 16:00.
Á sunnudeginum leikur 7.flokkur frá klukkan 10:00 – 15:00.

Að lokinni keppni fá keppendur grillaðar pylsur, svala og þátttökugjöf sem afhent verður á staðnum.

Skráning er nú í fullum gangi en mótsgjald eru litlar 2500 kr.
Skráning fer fram á netfanginu [email protected]

Aðrar fréttir