Sveinn Margeir í Dalvík/Reyni (STAÐFEST!)

Þær gleðifréttir voru að berast að Sveinn Margeir Hauksson hefur skrifað undir samning við Dalvík/Reyni og mun því leika með liðinu næsta sumar.
Sveinn er efnilegur og spennandi leikmaður sem kemur án efa til með að spila stórt hlutverk fyrir liðið næsta sumar.

Svein Margeir ættu allir Dalvíkingar að þekkja en hann er 16 ára miðjumaður og uppalinn Dalvíkingur. Sveinn kemur til liðsins frá KA þar sem hann hefur leikið undanfarin ár. Sveinn spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2015 fyrir D/R, þá í 2.deild.

Sveinn er bróðir Snorri Eldjárn Hauksson og því sonur Kötu og Hauks.

Það er ávallt gleðiefni þegar heimamenn snúa aftur og merki um það góða starf sem verið er að vinna í kringum félagið okkar. Einnig er þetta viðurkenning fyrir þá stefnu sem félagið hefur tekið í því átaki að fjölga heimamönnum og byggja upp stemningu í kringum liðið.

Velkominn Sveinn Margeir

ÁFRAM D/R
Hugrekki – Samheldni – Vinnusemi – Virðing

Aðrar fréttir