Sveinn Þór hættir sem þjálfari D/R

Sveinn Þór Steingrímsson hættir sem þjálfari meistaraflokks Dalvíkur/Reynis en þetta staðfestir Stefán Garðar Níelsson, formaður Knattspyrnudeildar Dalvíkur.

Sveinn tók við sem aðalþjálfari liðsins um mitt sumar 2017 eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari hjá Atla Má Rúnarssyni.
Á nýliðnu tímabili náði liðið frábærum árangri undir hans stjórn og stóðu uppi sem deildarmeistarar í 3. deildinni.

Knattspyrnudeild Dalvíkur þakkar Sveini fyrir samstarfið og óskum honum velfarnaðar í nýjum verkefnum.

Einar Ara liðsstjóri og Sveinn Þór

Aðrar fréttir