Tap fyrir vestan

Um helgina léku okkar menn í Dalvík/Reyni á Ísafirði gegn góðu Vestra liði. Liðsmenn Dalvíkur/Reynir flugu vestur með leiguflugi frá Norlandair. Við kunnum þeim bestu þakkir fyrir samstarfið.

Leikurinn byrjaði rólega og bæði lið að þreifa fyrir sér. D/R átti tvö hálffæri snemma leiks áður en Vestra menn náðu að pota inn marki á 30. mínútu.

Í síðari hálfleik gerðist fátt markvert. Hraði leiksins dó og marktækifærin voru að skornum skammti.
Vestra menn sigldu því heim 1-0 sigri.

Hér má sjá leikskýrslu leiksins

Þjálfarar Dalvíkur/Reynis þurftu að gera nokkrar breytingar á liði D/R vegna meiðsla og annarra ástæðna en flestir leikmenn liðsins ættu að ná heilsu fyrir næsta verkefni.

Næsti leikur okkar manna er strax á föstudaginn gegn spræku Fjarðabyggðar liði.

ÁFRAM D/R

Aðrar fréttir