Upphitun klukkutíma fyrir leik á morgun

Á morgun, fim. 9. ágúst, fer fram fiskidagsleikurinn á milli Dalvíkur/Reynis og KV. Leikurinn byrjar klukkan 19:00 á Dalvíkurvelli en upphitun fyrir ársmiðahafa og stuðningsmenn hefst klukkutíma fyrir leik í aðstöðunni okkar í sundlauginni.

Sigurvin Fíllinn Jónsson, Biggó Össurar og Þórir Áskels munu grilla hamborgara og verða með til sölu á gjafaprís!

Léttar veitingar verða í boði í upphituninni, Brúinn Stuðningsmenn mæta á svæðið og halda uppi fjörinu, þjálfarinn mætir og tilkynnir byrjunarliðið og hamborgarar verða á grillinu. Hálfleikskaffið fyrir ársmiðahafa verður svo að sjálfsögðu á sínum stað.

Hlökkum til að sjá sem flesta!

ÁFRAM D/R

Aðrar fréttir