Lengjubikar: Úrslitin ráðast
Á morgun, laugardaginn 30. mars, heldur Dalvík/Reynir austur á land og leikur þar við Fjarðabyggð í Lengjubikarnum.
Leikið verður í Fjarðabyggðarhöllinni og hefst leikurinn kl 14:00.
Á morgun kemur í ljós hverjir það verða sem sigra riðilinn og tryggja sér sæti í úrslitakeppni Lengjubikarsins.
Sem stendur eru Höttur/Huginn efstir með 7 stig – en þeir hafa lokið öllum sínum leikjum.
Dalvík/Reynir er í ágætri stöðu ásamt Völsungi, en Völlarar eiga leik á sama tíma gegn Leikni F.
Það verður því spennandi að sjá hvernig leikar fara á morgun.