Viktor Daði heim í D/R

Dalvík/Reynir heldur áfram að safna liði fyrir komandi átök í 2. deildinni á næsta ári. Viktor Daði Sævaldsson, Dalvíkingurinn knái, hefur skrifað undir tveggja ára samning við sitt heimafélag.

Viktor Daði ætti að vera fólki í Dalvíkurbyggð vel kunnugur en hann kemur heim til D/R frá Einherja á Vopnafirði þar sem hann hefur spilað undanfarin þrjú tímabil.
Viktor, sem er fæddur 1997, byrjaði ungur að spila með meistaraflokki en lék síðast með D/R í 2.deild árið 2015 þar sem hann gerði 5 mörk í 21 leik.  Alls hefur Viktor spilað 102 leiki og skorað í þeim 13 mörk.

“Við erum gífurlega ánægðir með að fá Viktor Daða heim. Fyrst og fremst er Viktor góður í fótbolta og mun passa vel inn í okkar umhverfi. Einnig hefur stefna félagsins verið sú að byggja upp á okkar heimastrákum og mynda ákveðna stemingu í kringum liðið. Það er því mjög jákvætt að fá góða leikmenn eins og Viktor Daða heim” sagði Stefán Garðar Níelsson, formaður Knattspyrnudeildar D/R.

Stuðningsmannafélagið Brúinn hefur fengið ósk sína uppfyllta. Í sumar sungu þeir hátt og snjallt “Viktor komdu heim“!

Viktor er annar leikmaðurinn sem D/R fær á þessu ári en fyrir skömmu skrifaði Númi Kárason undir samning.

Velkominn Viktor Daði !

Hugrekki – Samvinna – Vinnusemi – Virðing

Viktor Daði

Viktor Daði við undirskrift (mynd: Haukur Snorrason)

Aðrar fréttir