2.deild: Dalvík/Reynir – Selfoss

Í dag, fimmtudaginn 30. maí, tekur Dalvík/Reynir á móti Selfossi í Boganum á Akureyri.
Leikurinn hefst klukkan 16:00.

Selfyssingar eru að mörgum taldir með eitt besta liðið í 2.deild karla en liðið féll óvænt úr Inkasso-deildinni í fyrra.
Fyrir nokkrum vikum síðan áttust þessi lið við í úrslitaleik Lengjubikarsins og vann þá Selfoss sannfærandi sigur.

Við hvetjum fólk til þess að fjölmenna á leikinn og styðja við bakið á okkar mönnum.
Einnig minnum við á að ársmiðarnir eru komnir í sölu, en hægt verður að kaupa miða á leiknum í dag.

SelfossTV ætlar að sýna leikinn beint á YouTube-rás sinni.

ÁFRAM DALVÍK/REYNIR

Aðrar fréttir